Skipan úrskurðarnefndar velferðarmála
Úrskurðarnefnd velferðarmála er skipuð tólf nefndarmönnum og átta varamönnum. Formaður nefndarinnar, Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir lögfræðingur og þrír aðrir nefndarmenn, Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Kári Gunndórsson lögfræðingur og Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur eru skipaðir í fullt starf til fimm ára. Formaður nefndarinnar gegnir jafnframt embætti forstöðumanns úrskurðarnefndinnar, hefur yfirstjórn hennar með höndum og ber ábyrgð á fjárhag hennar og daglegum rekstri.
Átta nefndarmenn og jafnmargir til vara eru skipaðir til fjögurra ára í senn en þeir eru Agnar Bragi Bragason lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur, Guðfinna Eydal sálfræðingur, Kristinn Tómasson læknir, Unnþór Jónsson lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.
Varamenn eru Ari Karlsson lögfræðingur, Erla Guðrún Ingimundardóttir lögfræðingur, Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögfræðingur, Guðríður Anna Kristjánsdóttir lögfræðingur og tannlæknir, Helgi Viborg sálfræðingur, Hrafnhildur Árnadóttir lögfræðingur, Jón Baldursson læknir, Margrét Gunnlaugsdóttir lögfræðingur.
Úrskurðarnefndin starfar í fjórum þriggja manna deildum.
Nánar er fjallað um skipan nefndarinnar í 2. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.