Samkvæmt lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er hægt að kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar en frestar þó aðför á grundvelli ákvörðunar Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.
Kærufrestur vegna stjórnvaldsákvarðana Vinnumálastofnunar vegna ágreinings á grundvelli framangreindra laga er þrír mánuðir frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.