Fæðingar- og foreldraorlof
Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020 er hægt að kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna.
Einnig eru kæranlegar ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins sem teknar eru á grundvelli laga nr. 22/2006 um greiðslur til foreldra langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna. Þá eru ákvarðanir teknar á grundvelli laga nr. 77/2022 um sorgarleyfi kæranlegar til nefndarinnar.
Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar en frestar þó aðför á grundvelli ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs um endurkröfu ofgreiddra greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.
Kærufrestur vegna stjórnvaldsákvarðana Fæðingarorlofssjóðs og Tryggingarstofnunar vegna ágreinings á grundvelli framangreindra laga er þrír mánuðir frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.