Almannatryggingar

Úrskurðarnefndin úrskurðar í ágreiningsmálum er varða kærur vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð og lögum nr. 74/2020 um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.

Einnig sker úrskurðarnefndin úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands er varða grundvöll, skilyrði eða fjárhæð bóta samkvæmt lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og lögum nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga. Þá sker úrskurðarnefndin úr ágreiningsefnum vegna ákvarðana Sjúkratrygginga Íslands á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.

Kærufrestur vegna fyrrgreindra stjórnvaldsákvarðana er þrír mánuðir frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.